Frétt

19. jan. 2010

Námsdvöl í Japan fyrir framhaldsskólanema 15-18 ára

Stjórnvöld í Japan bjóða nú upp á skiptinámsdvalir fyrir evrópska framhaldsskólanema. Þetta kemur fram í frétt á vef menntamálaráðuneytis. Annars vegar er boðið upp á fimm vikna dvöl og hins vegar fimm mánaða dvöl. Meðan á dvölinni stendur munu styrkþegar sækja japanska skóla, dveljast á venjulegum japönskum heimilum og taka þátt í ýmsum viðburðum í Japan.
Tveir íslenskir nemendur fá styrk til styttri námsdvalar á þessu ári en enn er óákveðið hversu margir munu hljóta styrk til lengri námsdvalar. Sjá nánar hér.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli