Þær breytingar urðu á stjórn og samninganefnd FF nú í byrjun janúar að Magnús Ingólfsson lét af trúnaðarstörfum fyrir félagið en Magnús hefur verið varaformaður FF frá aðalfundi FF 2008. Stjórn FF samþykkti á fundi sínum 18. janúar s.l. að Ásdís Ingólfsdóttir gjaldkeri félagsins taki einnig að sér störf
varaformanns. Vegna þessara breytinga tekur Kolbrún Elfa Sigurðardóttir sæti sem aðalmaður í stjórn og samninganefnd FF en hún hefur verið varamaður í stjórn félagsins frá aðalfundi 2008. Félagið þakkar Magnúsi mikil og góð störf á liðnum árum.
Ennfremur urðu þær breytingar á stjórn FF í haust að Valgerður Þ. E. Guðjónsdóttir lét af störfum sem varamaður. Félagið þakkar Valgerði sömuleiðis fyrir störf hennar og samfylgdina.