Frétt

Dagur leikskólans er 6. febrúar
20. jan. 2010

Dagur leikskólans 6. febrúar '10

18. janúar 2010

Þann 6. febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því er mælst til þess að honum verði fagnað í leikskólum föstudaginn 5. febrúar. Leikskólakennarar munu þennan sama dag fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.

Leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskólanna, hafa á undanförnum árum, ásamt nemendum sínum gert daginn eftirminnilegan á margan hátt. Í fyrra var, svo dæmi séu tekin farið í „meðmælagöngur“, foreldrum og velunnurum boðið í morgunmat og kaffi, vasaljós notuð til að varpa ljósi á barnið, haldnar myndlistar-og leiksýningar og mikið sungið eins og venja er í leikskólum. Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til halda á lofti góðu starfi leikskólanna.

Við minnum á að hægt er að nálgast bæklinginn sem gefinn var út fyrsta árið sem dagurinn var haldinn, á netslóðinni http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/dagur_leikskolans.pdf.

Við hvetjum alla sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, til að halda degi leikskólans á lofti og vonumst eftir góðri þátttöku.

Við bjóðum góðan dag, alla daga.

Hrafnhildur Karlsdóttir
Formaður kynningarnefndar Félags leikskólakennara

Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Deildarstjóri í mennta-og menningarmálaráðuneyti

Svandís Ingimundardóttir
Skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga

Sjöfn Þórðardóttir
Formaður Heimilis og skóla


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli