Á fundi Skólamálaráðs KÍ, sem haldinn verður nk. miðvikudag 27. janúar, verður fjallað um þrjár áhugaverðar nýlegar rannsóknir um skólastarf. Fundurinn verður haldinn í Háteigi 2 á Grand hótel Reykjavík og hefst kl. 13:00 en lýkur kl. 17:00. Boðið er upp á léttan hádegisverð í upphafi fundar.
Frekari upplýsingar ef óskað er gefur Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Skólamálaráðs, elna hjá ki.is.
Sjá dagskrá hér og kynningu á fyrirlesurum hér.