Frétt

17. feb. 2010

Frétt frá mennta- og menningarmálaráðuneyti: Heildstæð menntun á umbrotatímum - menntaþing haldið 5. mars

Mennta- og menningarmálaráðuneyti stendur fyrir menntaþingi þann 5. mars nk. í Valsheimilinu að Hlíðarenda. Yfirskrift þingsins er Heildstæð menntun á umbrotatímum. Tilgangur þingsins er að efna til opinnar umræðu um menntastefnu.

Dagskrá þingsins verður tvíþætt. Kynntar verða áherslur í nýjum námskrám allra skólastiga og afrakstur af þjóðfundum um menntamál. Að því loknu verða reifuð og rædd ýmis álitamál sem varða breyttar aðstæður í skólasamfélaginu í málstofum.

Hver málsstofa tekur 45 mínútur og hefst á stuttu innleggi um viðkomandi málefni sem fylgt verður eftir með umræðum og samantekt. Þátttakendur færast milli málstofa og gefst þannig kostur á að koma sjónarmiðum sínum að um öll viðfangsefnin. Ýmsar upplýsingar sem varpa frekara ljósi á umræðuefnin verða kynntar á vef ráðuneytisins.

Þess er vænst að þingið verði góður vettvangur til að fá upplýsingar um stöðu mála, stilla saman strengi og skiptast á skoðunum um ýmis álitamál sem tengjast menntun.

Dagskrá:

11:30   Skráning og kaffi.
12:00   Ávarp ráðherra, Katrínar Jakobsdóttur.
12:20   Grunnstoðir og viðmið í nýrri menntastefnu.
13:10   Raddir af þjóðfundi um menntamál og frá Sóknaráætlun 2020.
13:30   Léttur hádegisverður.
14:00   Málstofur.
             a   Velferð í skólum - nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn.
             b   Námslengd og skil milli skólastiga - endurskoðun eða óbreytt ástand?
             c   Framhaldsskóli fyrir alla - markmið og leiðir.
16:30   Samantekt.
17:00   Þingslit.

Þátttaka í Menntaþingi verður takmörkuð við 300 þátttakendur. Skráning hér.

Til að tryggja að fulltrúar allra hagsmunaaðila frá ólíkum stofnunum, samtökum og landshlutum komist á þingið verður valið úr hópnum. Öllum verður tilkynnt um niðurstöðu skráningar fyrir 25. febrúar.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli