Frétt

10. mar. 2010

Mottumars á leikskólanum Hörðuvöllum

Karlarnir á Leikskólanum Hörðuvöllum í Hafnarfirði láta ekki sitt eftir liggja þegar kemur að því að styðja gott málefni. Nú hafa þeir af sönnum íþrótta- og keppnisanda skráð sig í liðakeppni Krabbameinsfélagsins og ætla allir sem einn að safna mottu í mars.

Það er mikilvægt að huga vel að forvörnum ekki síst þegar kemur að pungnum. Enda vita karlarnir á Hörðuvöllum að pungurinn er gríðarlega mikilvægur og leikskólinn má ekki við því að missa nein eistu. Karlarnir ætla því að safna mottum og skora á aðra leikskóla að gera slíkt hið sama.

Á heimasíðu átaksins http://karlarogkrabbamein.is má fylgjast með hvernig söfnunin gengur. Öll áheit renna til styrktar rannsóknum á krabbameini.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli