Frétt

29. mar. 2007

Vefsvæði um 10 skref til sóknar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands undirrituðu samkomulag um Skólastarf og skólaumbætur – 10 skref til sóknar þann 2. febrúar 2006. Í kjölfarið voru settir á stofn nokkrir starfshópar og nefndir til að vinna að þessu verkefni.

Fjórir starfshópanna hafa nú skilað tillögum sínum til menntamálaráðherra, þ.e. starfshópur um málefni nemenda á almennri námsbraut framhaldsskóla, starfshópur um fjar- og dreifnám, starfshópur um náms- og starfsráðgjöf og starfshópur um sveigjanleika og fjölbreytileika í skipulagi náms og námsframboðs. Enn eru að störfum nefndir um endurskoðun laga um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Sérstöku vefsvæði hefur nú verið komið upp með helstu upplýsingum um þetta verkefni, http://menntamalaraduneyti.is/menntamal/tiuskref, og er þar m.a. að finna skýrslur einstakra starfshópa.

Heimild: Vefrit menntamálaráðuneytis, 12. tbl. 2007.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli