Frétt

20. apr. 2010

Kennaramenntun í HÍ - fundaröð í apríl til júní

Árið 2008 voru samþykkt lög frá Alþingi um að menntun kennara á skólastigunum frá leikskóla til framhaldsskóla skuli frá og með júlí 2011 ljúka með meistaraprófsgráðu. Í kjölfar lagasetningarinnar hófst vinna við skipulag fimm ára kennaranáms í Kennaraháskóla Íslands og síðan við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Af þessu tilefni boðar Menntavísindasvið til fimm opinna funda á næstu vikum. Tilgangur fundanna er í fyrsta lagi að gefa sem flestum tækifæri til að taka þátt í umræðu um kennaramenntun og í öðru lagi að kynna þær áætlanir um námsskipan sem Menntavísindasvið vinnur að um þessar mundir. Á fyrsta fundi verður opnuð vefsíða um kennaramenntun.
Á hverjum fundi verða stutt framsöguerindi og síðan opnar umræður. Samantekt úr umræðum verður kynnt á síðasta fundi. Verður hún höfð til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við skipulag námsins.

Fundirnir eru öllum opnir og verða í húsnæði Menntavísindasviðs kl. 15:00 - 16:30. Gengið er inn frá Háteigsvegi. Sjá dagskrá hér. Framsöguerindi verða birt á vefsíðu Menntavísindasviðs. Allt áhugafólk um kennaramenntun er hvatt til að taka þátt í samræðunni.

Fyrsti fundurinn er 26. apríl nk. en þá heldur Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs, erindi undir heitinu Hugmyndafræðileg átök í mótun kennaramenntunar.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli