Frétt

5. okt. 2010

Alþjóðadagur kennara er í dag, 5. október

Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur um allan heim 5. október ár hvert að forgöngu UNESCO. Þennan dag eru kennarar heiðraðir af tugum þúsunda nemenda, foreldra og aðgerðasinna í yfir hundrað löndum í öllum heimsálfum. Og þennan dag nota kennarar samtakamátt sinn til að tryggja að hugað sé að þörfum barna og ungmenna fyrir menntun í nútíð og framtíð. Góð almenn menntun við hæfi hvers og eins á að standa öllum til boða burtséð frá þjóðerni, kynferði, húðlit, fötlun, stétt, efnahag, búsetu, heilsufari eða öðru því sem greinir okkur að og gerir okkur sérstök. Í ár er kastljósinu sérstaklega beint að kennurum í þeim samfélögum sem hafa orðið hart úti vegna náttúruhamfara, efnahagshruns, faraldra, hungursneyðar eða vopnaðra átaka. Kennarar draga úr skaða af völdum hamfara og kreppu valda og efla endurnýjun og vekja von um bjartari tíð. Um víða veröld vinna kennarar að því hörðum höndum að færa nemendum menntun og vera lærdómsfélagar þeirra og leiðbeinendur. Yfirskrift Alþjóðadagsins 2010 er Batinn hefst með kennurum. Við hvetjum alla þá sem vilja leggja hönd á plóginn og berjast fyrir góðri almennri menntun á heimsvísu til að fagna í dag, hylla kennara og sýna þeim stuðning í verki.
Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli