8. okt. 2010
Fræðslufundur um einelti og áreiti á vinnustöðum
Fræðslufundur um einelti og áreiti á vinnustöðum var haldinn í Gerðubergi í gær að frumkvæði þriggja nefnda hjá Kennarasambandinu, jafnréttisnefnd, siðaráðs og vinnuumhverfisnefnd. Til hans var boðið nefndarfólki, formönnum aðildarfélaga KÍ, formönnum skólamálanefnda KÍ og þeim starfsmönnum Kennarahúss sem tengjast þessum málaflokki með einhverjum hætti. Þrjú erindi voru haldin um einelti, forvarnir og úrvinnslu og sagt frá merkilegu starfi sem Reykjavíkurborg annars vegar og hins vegar fjögur ráðuneyti í samstarfi við ýmsa aðila hafa unnið til að koma í veg fyrir og vinna bug á ofbeldi af þessum toga. Var þar meðal annars kynntur ferill í grunnskólum þegar upp kemur einelti í starfsmannahópnum, ný greinargerð í samstarfi þriggja ráðuneyta um aðgerðir gegn einelti í skólum og á öðrum vinnustöðum og niðurstöður eineltiskönnunar meðal ríkissstarfsmanna. Gestir fundarins og jafnframt fyrirlesarar Fyrirlesarar á fundinum voru þau Sigurbjörg Helgadóttir, Þór. G. Þórarinsson, Guðni Olgeirsson og Ágústa Hlín Gústafsdóttir. Talsverðar umræður spunnust að erindum loknum, til að mynda um einstakar tillögur í greinargerð ráðuneytanna sem mikil og góð vinna hefur verið lögð í og allir geta lesið sér til um
hér. Sérstök ánægja kom fram með vinnu Reykjavíkurborgar um leið og fólk viðraði áhyggjur sínar af því að minni bæjar- og sveitarfélög hefðu ekki úr sömu auðlindum að moða og brýnt væri að sjá til þess að þau sætu við sama borð. Einnig kom skýrt fram hversu mikilvægt væri að einfalda aðgengi þolenda að stuðningi þannig að þeim þætti ekki of flókið og erfitt að tilkynna um það og leita sér hjálpar. Margt fleira var tekið til umræðu og ljóst að fundurinn og fundarefnið hitt í mark hjá viðstöddum. Þess má geta að fjallað verður um einelti á vinnustöðum í næstu Skólavörðu.
Til baka