Frétt

16. mar. 2011

Kynning á framhaldsnámi við Menntavísindasvið

Fimmtudaginn 24. mars kl. 16:00 til 18:00 verður kynning á framhaldsnámi við Menntavísindasvið í Fjöru, húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Kennarar og nemendur taka á móti gestum og kynna fjölbreytt framhaldsnám í þremur deildum Menntavísindasviðs:

          • Kennaradeild
          • Uppeldis- og menntunarfræðideild
          • Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild

Í Kennaradeild er í boði meistaranám á brautunum Náms- og kennslufræði og Kennslufræði framhaldsskóla og háskóla. Í Náms- og kennslufræði geta nemendur sérhæft sig með því að velja eitt af eftirfarandi kjörsviðum:

          • Íslenska - íslenskukennsla.
          • Kennsla erlendra tungumála.
          • Kennslufræði og skólastarf.
          • Listmenntun - listasaga - verkmenntun.
          • Mál og læsi.
          • Menntunar- og kennslufræði yngri barna.
          • Náttúrufræðimenntun.
          • Stærðfræðimenntun.
          • Upplýsingatækni og miðlun.

Vakin er sérstök athygli á námskeiðum í starfstengdri, faglegri leiðsögn.

Í Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild býðst meistaranám í íþrótta- og heilsufræði MS og M.Ed, tómstunda- og félagsmálafræði M.Ed. og þroskaþjálfafræði MA.

Í Uppeldis- og menntunarfræðideild er í boði fjölbreytt og spennandi meistaranám á fimm námsbrautum og innan þeirra eru fjölmargar námsleiðir.

Námsbrautir:

  • Menntunarfræði.
  • Menntastjórnun og matsfræði.
  • Nám fullorðinna.
  • Sérkennslufræði.
  • Sálfræði í uppeldis- og menntavísindum.

Bæklingur um meistaranám.

Allir velkomnir. Umsóknarfrestur um framhaldsnám er til 15. apríl. Sótt er um nám á www.hi.is.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli