Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra flytur erindi í upphafi þingfundar fimmtudaginn 7. apríl. Að loknu erindi hennar flytur gestafyrirlesari þingsins, Peter Mortimore, fyrrverandi prófessor, fyrirlestur sem hann nefnir „Vandamál og áskoranir í skólamálum í dag“ (The dilemmas and challenges of education today). Mortimore er vinsæll fyrirlesari um skólamál enda kunnur fyrir störf sín og rannsóknir á því sviði m.a. rannsóknir á árangri í skólastarfi, skólastjórnun og vandamálum í skólastarfi. Í seinni tíð hefur hann vakið athygli fyrir greinarskrif sín um skólamál í breska stórblaðinu the Guardian.
Meira um Peter Mortimore
Peter Mortimore hefur áratuga reynslu af störfum á sviði kennslu og skólamála. Hann hóf feril sinn sem framhaldsskólakennari í London og síðan skólastjórnandi. Hann hefur auk kennslu og starfa við stjórnun og rekstur skóla unnið að viðamiklum rannsóknum á sviði skóla- og menntunarmála á vegum ýmissa háskóla og háskólastofnana. Hann var skipaður prófessor og yfirmaður The School of Education við Lancaster University árið 1988 og var skipaður aðstoðar framkvæmdastjóri the Institute of Education 1990 og skipaður framkvæmdastjóri stofnunarinnar 1994. Árið 2000 var Mortimore skipaður vararektor við University of London.
P. Mortimore var formaður the Association for Child Psychology and Psychiatry frá 1984 - 1985 og forseti the British Educational Research Association frá 1999 - 2001.
Eftir að P. Mortimore lét af störfum við London University hefur hann m.a. unnið að endurskoðun á vegum OECD á danska og norska skólakerfinu. Einnig hefur hann unnið að verkefnum fyrir breska Kennarasambandið (the Union of Teachers of England and Wales) og ástralska kennarasambandið (the Australian Education Union), svo og fyrir Alþjóðasamband kennara (Education International).
Frá 2006 - 2010 var Peter Mortimore ritstjóri fastra, mánaðarlegra dálka um skóla- og menntamál í breska stórblaðinu the Guardian sem vakið hafa mikla athygli. Tengill á síðu með greinum eftir P. Mortimore.