Frétt

2. maí 2011

List- og menningarfræðsla á Íslandi

Mennta- og menningarmálaráðuneytið réðst í umfangsmikla úttekt á umfangi og gæðum list- og menningarfræðslu á Íslandi árin 2008 - 2009. Niðurstöður úttektarinnar eru nú komnar út í íslenskri þýðingu og má sjá þær hér. Á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins má sjá eftirfarandi tilkynningu:

„Í úttektinni voru lagðar til grundvallar eftirfarandi spurningar:

          • Hvað er gert í listfræðslu og hvernig er það gert?
          • Hver eru gæði listfræðslu á Íslandi?
          • Hvaða möguleikar liggja í listfræðslunni nú og í framtíðinni og hverjar eru áskoranirnar?

Úttektin tók hálft ár og beitt var bæði eigindlegum og megindlegum aðferðum. Horft var til framboðs á list- og menningarfræðslu bæði í formlega jafnt sem óformlega skólakerfinu. Á Íslandi felur þetta í sér bæði list- og menningarfræðslu innan skóla sem utan, svo sem tónlistar- og listnáms, og fræðslu og náms á vegum safna og leikhópa. Rannsóknin tók einnig til leikskólaaldurs og til þess sem í boði er fyrir börn með sérþarfir. Framkvæmd skólastarfs og aðgengi að námi var kannað auk þess sem horft var til kennaramenntunar og þeirra möguleika sem kennarar og listamenn hafa til endur- og símenntunar. Að auki var litið til hlutverks og framlags skapandi list- og menningargreina í ljósi nýlegra hræringa í efnahagslegu og pólitísku umhverfi á Íslandi.“


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli