Kennarasamband Íslands/framhaldsskóli og Samninganefnd ríkisins hafa skrifað undir kjarasamning til þriggja ára. Samningurinn byggir á sömu forsendum og kjarasamningar á almennum markaði.
Samhliða hefur menntamálaráðherra og KÍ/framhaldsskóli undirritað samstarfssamning um samvinnu við innleiðingu framhaldsskólalaganna sem taka að fullu gildi 2015. Samstarfssamninginn má sjá á vef menntamálaráðuneytisins á slóðinni http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/6036.
Kjarasamningurinn fer nú til atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna KÍ/framhaldsskóla og til samþykkis fjármálaráðherra.
Reykjavík, 26. maí 2011