Frétt

Stöndum með leikskólanum!
12. ágú. 2011

Stöndum með leikskólanum!

Félag grunnskólakennara, Félag framhaldsskólakennara, Skólastjórafélag Íslands, Félag stjórnenda í framhaldsskólum, Félag stjórnenda leikskóla og Félag tónlistarskólakennara styðja leikskólakennara í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og leiðréttingu launa.

Í leikskólum fer fram metnaðarfullt starf sem hefur það markmið að leggja grunn að alhliða þroska og færni nemenda. Starfið er sérlega ábyrgðarmikið og því löngu tímabært að meta það að verðleikum. Framangreind aðildarfélög Kennarasambands Íslands hvetja samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga til að ganga strax til samninga við leikskólakennara áður en til verkfalls kemur.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli