Atkvæðagreiðsla um kjarasamning KÍ vegna Félags leikskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga fer fram 1. til 6. september nk. Atkvæðagreiðslan er rafræn og sjá trúnaðarmenn um framkvæmd hennar í leikskólunum, en send verða út lykilorð með nákvæmum upplýsingum varðandi atkvæðagreiðsluna. Atkvæðagreiðslan hefst kl. 9:00 fimmtudaginn 1. september og lýkur kl. 16:00 þriðjudaginn 6. september.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Sigríður Sveinsdóttir, netfang: sigridur hjá ki.is, sími: 595 1111.