Frétt

1. sep. 2011

Skólaþing Alþingis

Skólaþing er kennsluver Alþingis þar sem grunnskólanemum í 8.-10. bekk gefst kostur á að setja sig í spor þingmanna með því að fara í hlutverkaleik. Í leiknum er notast við margmiðlun og tölvutækni til að miðla upplýsingum og stýra leiknum. Með Skólaþingi er leitast við að efla skilning og þekkingu nemenda á stjórnskipulagi okkar, störfum Alþingis og lýðræðislegum vinnubrögðum. Efni Skólaþings tengist vel námsefni í lífsleikni og samfélagsgreinum.

Skólaþing Alþingis tók til starfa í nóvember 2007 og hafa rúmlega 4.700 nemendur komið þangað. Reynsla okkar, starfsmanna Skólaþings, er sú að kennarar og nemendur hafa verið afar ánægðir með heimsóknina og kennarar komið með nýjan nemendahóp að ári. Margir skólar hafa gert heimsókn í Skólaþing að föstum lið og sumir hafa tekið þátttöku og frammistöðu nemenda í heimsókninni inn í námsmat og/eða látið þá skila umsögn um heimsóknina.

Í upphafi nýs skólaárs er starfsmönnum Skólaþings Alþingis umhugað um að upplýsingar um starfsemi þess berist til allra grunnskólakennara sem gætu nýtt sér þá fræðslu sem þar er í boði.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Skólaþings: www.skolathing.is.

Fyrirspurnir eða bókanir má senda á skolathing hjá skolathing.is eða hringja í síma 563 0500 á skrifstofutíma.

Fréttatilkynning.
Umsagnir nemenda.

Í Morgunblaðinu sunnudaginn 22. júní, 2008 sagði Ásta R. Jóhannesdóttir um Skólaþing:

Skólaþing er þarfaþing
Ásta R. Jóhannesdóttir segir frá Skólaþingi, verkefni fyrir grunnskólanema: "Það er aldrei of snemmt að þjálfa ungt fólk í rökræðu, ákvarðanatöku, upplýsingaöflun og umræðu um málefni líðandi stundar." http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=1223900.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli