Frétt

14. sep. 2011

Morgunverðarfundur og málþing 21. september nk.

Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála bjóða til tveggja aðskildra viðburða, morgunverðarfundar og málþings á Hótel Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 21. september n.k. kl. 8-12. Sjá nánar hér.

Morgunverðarfundur k. 8:00-10:00

Yfirskrift morgunverðarfundarins er „Hvað er framundan í opinberum rekstri? Staðan, horfurnar, stefnan og áherslurnar. Hvaða áhrif hefur efnahagslegur samdráttur haft á íslenskt samfélag?“ Þar munu Steingrímur J Sigfússon, fjármálaráðherra, Dr. Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir forstöðumaður Félagsvísindastofnunar vera með erindi og taka þátt í umræðum. Fundarstjóri er Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands og formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana.

Þátttökugjald eingöngu á morgunverðarfund er kr. 3.900,- og er morgunverður innifalinn. Hægt er að skrá sig hér á Morgunverðarfund eingöngu.

Málþing kl. 10:15-12:00

Á málþinginu sem hefst að loknum morgunverðarfundi munu 6 forstöðumenn og staðgenglar þeirra fjalla um áhrif og afleiðingar hrunsins á starfsemi viðkomandi stofnunar, starfsfólkið og skjólstæðingana. Málþingið kallast „Hvernig hafa opinberar stofnanir brugðist við efnahagslegum samdrætti? Sýn forstöðumanna og ráð til stjórnvalda.“ Þau munu einnig m.a. svara spurningum um hvort og þá á hvaða forsendum stofnanir hafa þurft að víkja lagalegum skyldum til hliðar og að hvaða leyti stjórnvöld hafa komið að breytingum í starfseminni. Þau munu ræða aðlögunargetu opinberra stofnana við aðstæður eins og við höfum staðið frammi fyrir og velta fyrir sér hvort og þá að hvaða leyti afstaða þeirra til opinberrar starfsemi hafi breyst. Að lokum ræða þau framtíðarsýn sína og gefa stjórnvöldum ráð um áherslur og næstu skref sem varða viðkomandi stofnun og þá grein sem þau starfa í.

Eftirtaldir verða með erindi á málþinginu: Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, Sigurður Kristinsson, vararektor Háskólans á Akureyri, Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar og Svanhildur Sverrisdóttir, starfsmannastjóri Landhelgisgæslunnar. Fundarstjóri er Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.

Þátttökugjald eingöngu á málþing er kr. 2.900,-. Hægt er að skrá sig hér á Málþing eingöngu.

Skráning á báða viðburðina

Þátttökugjald á báða viðburðina, morgunverðarfund og málþing (morgunverður innifalin) er kr. 5.900,-. Skráning hér : Morgunverðarfundur og Málþing.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli