Ágæti félagsmaður!
Síðastliðinn vetur var tekinn upp rafrænn umsóknarvefur, Mínar síður, fyrir sjóði Kennarasambands Íslands. Með því að skrá sig inn á Mínar síður geta félagsmenn sótt rafrænt um styrki endurmenntunarsjóða aðildarfélaganna, sjúkrasjóðs og bókað hjá Orlofssjóði. Hægt er að tengjast Mínum síðum frá forsíðu ki.is, sjá mynd.
Á forsíðu ki.is undir merkinu Mínar síður eru leiðbeiningar um nýskráningu. Lykilorðið berst í heimabanka félagsmanns undir rafræn skjöl. Athugið að það getur tekið einhvern tíma fyrir lykilorðið að berast og virkjast. Endilega sýnið þolinmæði. Þeir félagsmenn sem ekki hafa einkabanka geta fengið lykilorðið sent í bréfapósti.
Sækja þarf um flesta styrki rafrænt og gengur afgreiðsla þeirra fljótar heldur en pappírsumsókna. Ef félagsmaður hefur ekki aðgang að tölvu sækir hann um á pappír. Þá má einnig koma á skrifstofu KÍ á afgreiðslutíma (kl. 9:00-16:00) og sækja um þar.
Á Mínum síðum geta félagsmenn skoðað stöðu sína hjá sjóðum KÍ og í framtíðinni stöðu orlofspunkta. Síðar í haust verður einungis hægt að bóka leiguhúsnæði Orlofssjóðs í gegnum Mínar síður.
Með félagskveðjum.