Fleiri en 200 milljón börn víðs vegar um heim vinna við erfiðar og oft mjög hættulegar aðstæður til að afla tekna sem eru lífsnauðsynlegar fyrir þau sjálf og fjölskyldur þeirra. Í verstu tilvikunum eru börnin tekin frá fjölskyldum sínum og hneppt í þrældóm þar sem þau eru ofurseld margs konar hættum, sjúkdómum og kynferðislegu ofbeldi eða send út á stræti stórborganna og þau látin sjá um sig sjálf.
12. júní er alþjóðlegur baráttudagur gegn barnavinnu, World Day Against Child Labour. Alþjóðasamtök kennara (Education International) vekur athygli þennan dag á þeirri staðreynd að mannréttindi hundruð milljóna barna víðs vegar um heim eru fótum troðin. EI tekur þátt samvinnuverkefnunum „Global Task Force on Child Labour“ og „Education For All“ ásamt stofnunum Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðabankanum og samtökunum Global March Against Child Labour. Samvinnan snýst um að koma í veg fyrir og útrýma barnavinnu.
Fred Van Leeuwen aðalframkvæmdastjóri EI hefur vakið athygli á því að barna sem neydd eru til vinnu og fá ekki að njóta réttar síns til menntunar bíður oft ekkert nema atvinnuleysi og fátækt síðar á lífsleiðinni. Þau skortir kunnáttu til að vinna störfin þar sem þörf er fyrir vinnuafl þegar þau vaxa úr grasi.
„Samtök kennara um allan heim heita því að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að öll þessi börn séu svipt æsku sinni“, segir Van Leeuwen. „Við berjumst ásamt aðildarfélögum okkar fyrir því að til verði áætlanir sem miða að því að öll börn fái notið skólagöngu. Við vitum að mennntun er farsælasta leiðin til að koma í veg fyrir þá barnaþrælkun sem nú viðgengst í heiminum“.
Kaylash Satyarthi er formaður verkefnsins Global Against Child Labour. Hann tekur undir með Van Leeuwen: „Menntun er lykill að öllum öðrum réttindum okkar. Hún skiptir öllu máli í baráttunni gegn HIV og alnæmi. Hún skiptir öllu máli í baráttunni gegn fátækt og fyrir jöfnuði í þjóðfélaginu. Án menntunar náum við engum þeirra markmiða sem við höfum sett okkur með áætluninni Millennium Development Goals“.
12. júní, baráttudagurinn gegn barnavinnu, er mikilvægur dagur á dagatali þeirra sem vinna að málefnum barna, kennara og samtaka þeirra um allan heim. Í ár er dagurinn helgaður baráttunni fyrir því að útrýma barnavinnu í landbúnaði.
Í tilefni dagsins hafa Alþjóðasamtök kennara (EI) og Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) gefið út bækling með heitinu „Harvest for the Future: Agriculture without Child Labour“. Þar er að finna ýmsar staðreyndir um barnavinnu og upplýsingar sem koma að gagni í baráttunni gegn barnavinnu. Hægt er að nálgast ritið hér.