Frétt

13. jún. 2007

Við eigum að meta störf kennara

Athygli vekur að Morgunblaðið hefur undanfarið birt fjöld frétta og greina um skólastarf víða um land. Kennarastarfið og menntamál í víðu samhengi hafa líka komið við sögu í leiðaraskrifum blaðsins. Í leiðara sunnudaginn 10. júní sl. segir meðal annars: „Kennarar vinna svo mikilvægt starf í þágu unga fólksins að þeir eiga kröfu á að það verði metið að verðleikum og þá meðal annars í launum. Kennarar geta ráðið úrslitum um farsæld hinna ungu kynslóða.“ Síðar í leiðaranum segir: „Við eigum að sýna í verki, að við metum störf kennara, hvort sem er á leikskólastigi, grunnskólastigi, framhaldsskólastigi eða í háskóla.“ Umfjöllun Morgunblaðsins um menntamál er þakkarverð og tímabær. Kennurum þótti furðu sæta hversu lítið stjórnmálamenn ræddu um málaflokkinn í aðdraganda og eftirmála alþingiskosninga og vonandi verður átak Morgunblaðsins til þess að þeir sem aðrir taki við sér og sýni menntun þann gaum sem henni ber.
Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli