Orlofssjóður Kennarasambands Íslands óskar eftir að taka á leigu húsnæði til endurleigu sumarið 2012 fyrir félagsmenn. Bæði íbúðarhúsnæði og sumarhús koma til greina. Húsnæðið þarf að vera vel búið húsgögnum og uppfylla kröfur um góðan húsbúnað. Leigusali þarf að hafa reglulegt eftirlit með húsnæðinu. Fastur leigutími eru 8 vikur á tímabilinu 8. júní til 17. ágúst 2012.
Upplýsingar með góðum lýsingum og myndum svo og tilboð berist til skrifstofu Orlofssjóðs KÍ, Laufásvegi 81 og á netfangið orlof hjá ki.is fyrir 15. janúar n.k.
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands
Laufásvegi 81
101 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Þórisdóttir í síma 595-1111, netfang: orlof hjá ki.is, fax: 595-1112.