Fyrsta málstofan af átta um framhaldsskólarannsóknir verður haldin miðvikudaginn 1. febrúar kl. 16:20-17:05 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, stofu K-207. Í þessari fyrstu málstofu er það Kristjana Stella Blöndal, lektor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, sem fjallar um áhugavert efni undir heitinu: Skuldbinding framhaldsskólanemenda í tengslum við námsframvindu þeirra.
Lýsing: Hlutfallslega margir hætta í framhaldsskóla á Íslandi miðað við nágrannalöndin. Jafnframt er algengt að nemendur séu á eftir áætlun í náminu miðað við „hefðbundna“ framvindu. Kynntar verða rannsóknarniðurstöður um hvernig mismunandi þættir skuldbindingar nemenda gagnvart námi og skóla tengjast framvindu þeirra í framhaldsskóla. Leitað er svara við þeirri spurningu hvort samspil skuldbindingar og námsframvindu sé ólíkt eftir hvort stelpur eða strákar eiga í hlut. Jafnframt verður áhersla lögð á að skoða samspil þessara þátta eftir því hvort ungmennin voru í bóknámi eða í starfs- og verknámi.
Námsbraut um kennslu í framhaldskólum og Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs boða til funda (málstofa) um rannsóknir á framhaldsskólastarfi. Málstofurnar verða í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð í stofu K-207 kl. 16:20-17:05 á miðvikudögum í febrúar og mars 2011. Sjá nánar hér.
Allir velkomnir