Önnur málstofa af átta um framhaldsskólarannsóknir verður haldin miðvikudaginn 8. febrúar kl. 16:20-17:05 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð, stofu K-207. Sólveig Jakobsdóttir dósent og Þuríður Jóhannsdóttir lektor, báðar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fjalla um fjarnám, framhaldsskólann og félagslegt réttlæti.
Árið 2010 fól mennta- og menningarmálaráðuneytið höfundum að gera úttekt sem skyldi beinast sérstaklega að þremur stærstu fjarnámsskólunum, þ.e. Fjölbrautaskólanum við Ármúla, Verzlunarskóla Íslands og Verkmenntaskólanum á Akureyri. Í þessu erindi verður sérstaklega fjallað um þann hluta niðurstaðna sem snýr að nemendahópnum og þörfum hans. Skoðaðar verða ástæður þess að nemendur kusu að nýta kosti fjarnáms og gerð grein fyrir mati þeirra á gildi fjarnámsins. Niðurstöður leiða m.a. í ljós að tækifæri til að taka áfanga í fjarnámi hefur gert fólki sem annars hefði ekki haft aðgang að skóla mögulegt að ljúka prófum úr framhaldsskóla. Þannig hefur fjarnám á netinu stuðlað að því að styðja hópa sem af mismunandi ástæðum eru í hættu á að falla brott úr reglulegu námi og þannig hefur fjarnámið stuðlað að félagslegu réttlæti.
Námsbraut um kennslu í framhaldskólum og Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs boða til funda (málstofa) um rannsóknir á framhaldsskólastarfi. Málstofurnar verða í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð í stofu K207 kl. 16:20-17:05 á miðvikudögum í febrúar og mars 2011.
Haustið 2011 voru fluttir nokkrir fyrirlestrar í sömu röð af málstofum. Upptökur frá fjórum þeirra eru nú aðgengilegar á slóðinni: http://www.hi.is/menntavisindasvid/upptokur_fra_radstefnum_og_fyrirlestrum_vid_menntavisindasvid. Þar verða jafnframt birtar upptökur af völdum fyrirlestrum úr þessari málstofuröð.