Alþjóðleg ráðstefna um útinám og náttúruleg leiksvæði verður haldin við Menntavísindasvið Háskóla Íslands frá 31. maí til 2. júní 2012. Sjá auglýsingu hér.
Ráðstefnan mun skapa vettvang fyrir fagfólk og almenning til að deila þekkingu og reynslu á þessu sviði, með því að bjóða upp á fyrirlestra, umræður, kynningar og vinnusmiðjur.
Fyrirlesarar hafa fjölbreytan bakgrunn í félags- og uppeldisfræðum, frístunda- og ungmennastarfi, landslagsarkitektúr og á heilbrigðis- og eftirlitssviði. Þeir munu fjalla um útinám, náttúruleg leiksvæði, áhrif náttúrlegs umhverfis á þroska barna og hættumat á Íslandi og erlendis.
Ráðstefnan er opin öllum sem starfa við og/eða hafa áhuga á útinámi, sem eru til dæmis kennarar, landsslagsarkitektar, verkfræðingar og nemar í þessum greinum, fólk sem vinnur í frístundastarfi, foreldrar og auk þess fulltrúar frá hinu opinbera. Umsóknarfrestur til skráningar er til 15. apríl 2012. Nánari upplýsingar er að finna á www.utinam.hi.is. Einnig er hægt að hafa samband í síma 892 6804 eða senda fyrirspurn á utinam.island hjá gmail.com.
Markmið ráðstefnunnar er að:
Stýrihóp mynda: George Hollanders, Sarka Mrnakova, Kristín Dýrfjörð Háskólanum á Akureyri og Jakob Frímann Þorsteinsson, Háskóla Íslands.