Frétt

30. apr. 2012

Verum saman 1. maí!

Hátíðahöld 1. maí í Reykjavík hefjast kl. 13:00 með því að fólk safnast saman á Hlemmi. Gangan leggur af stað kl. 13:30 og útifundur hefst á Ingólfstorgi kl. 14:10. Að loknum fundi kl. 15:15 býður Kennarasambandið félagsmönnum sínum upp á hið árlega 1. maí kaffi á Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2.

Ath. Hátíðahöld í tilefni af 1. maí fara fram víða um land og upplýsingar eru í flestum tilvikum ýmist komnar eða væntanlegar á vefi sveitarfélaga og/eða fésbókarsíður þeirra.

Dagskrá í Reykjavík á 1. maí 2012

  • Safnast saman á Hlemmi kl. 13:00.
  • Gangan hefst kl. 13:30.
  • Örræður á leið göngunnar niður Laugaveg.
  • Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14:10.
  • Fundarstjóri Þórarinn Eyfjörð.
  • Kvennakór Léttsveitar Reykjavíkur syngur tvö lög.
  • Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélags Íslands heldur ræðu.
  • Drengjakór Reykjavíkur syngur tvö lög.
  • Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands heldur ræðu.
  • Karlakór Reykjavíkur syngur tvö lög.
  • Kvennakór Léttsveitar Reykjavíkur og Karlakór Reykjavíkur syngja eitt lag saman.
  • Kórar og lúðrasveitir syngja og spila „Internationalinn“.
  • Fundi slitið um kl. 15:00

Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli