Frétt

25. apr. 2012

Könnun á þörf og framkvæmd undirbúningstíma

Í gær, 24. apríl, var send út könnun til félagsmanna í Félagi leikskólakennara og til leikskólastjóra á þörf og framkvæmd undirbúningstíma utan hefðbundinna starfa á deild. Könnunin er unnin samkv. bókun 6 í kjarasamningi FL við sveitarfélögin. Outcome hugbúnaður ehf sér um framkvæmd könnunarinnar. Byggt er á könnun sem unnin var vorið 2006. Könnunin var send á netföng allra félagsmanna í FL og FSL sem eru með skráð netföng í félagaskrá KÍ. Könnunin verður opin til kl. 15:00, föstudaginn 4. maí 2012. Mikilvægt er að sem flestir taki þátt í könnuninni.
Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli