Í frétt frá Hagstofu Íslands um leikskóla kemur m.a. fram að frá desember 2009 til sama mánaðar árið 2011 fjölgar körlum í starfi í leikskólum um 64, en konum fækkar um 188. Einkum fjölgar körlum sem starfa við kennslu. Þeir voru 197 árið 2009 en 253 árið 2011, og hafði því fjölgað um 28,4% á tveimur árum. Á þessu tveggja ára tímabili fækkaði konum í sömu störfum um 154; 3,1%. Í desember 2011 störfuðu 5.515 manns í 4.798 stöðugildum við leikskóla á Íslandi. Það er fjölgun um 27 starfsmenn frá fyrra ári (0,5%) og stöðugildum fjölgaði einnig um 27 (0,6%). Leikskólabörnum hefur fjölgað um 198 á sama tíma, eða um 1,0%. Frá desember 2009 hefur leikskólabörnum fjölgað um 443 en starfsmönnum fækkað um 124, segir í frétt Hagstofu Íslands.
Sjá nánar á vef Hagstofu.