7. maí 2012
Vissir þú að ...
... kennarar eru taldir vera í mestri áhættu að skaða röddina við vinnu sína?
Rannsóknir hafa sýnt fram á að:
- Talið er að milli 20%-80% kennara þjáist af ýmsum álagseinkennum á rödd (þurrkur, erting, sviði, kökkur, hæsi án kvefs, ræskingaþörf, raddbrestur, raddþreyta).
- Kennarar eru taldir vera í mestri áhættu að skaða röddina við vinnu sína. Ástæður? Líkamlegar, andlegar og óvistvænt umhverfi.
- Helmingi fleiri kennarar kvarta undan raddvandamálum miðað við þá sem starfa ekki sem kennarar.
- Kennarar skipa efstu sæti þeirra sem leita til læknis vegna raddvandamála og óþægindaeinkenna þeim tengdum.
- Kvenfólki er hættara við raddvandamálum sérstaklega af líffræðilegum orsökum og um 80% kennara eru konur.
- Bjartar kvennaraddir falla inn í kliðinn frá nemendum.
- Kennarar sem hafa lengri kennsluferil kvarta meira undan álagseinkennum á röddina.
- 44% kennara kenna kennsluumhverfi um raddvandamál sín.
- 20% kennara hafa þurft að taka veikindaleyfi vegna raddar miðað við 4% þeirra sem starfa ekki sem kennarar.
- Markviss raddþjálfun hefur fækkað veikindadögum hjá kennurum.
- Börn hafa dæmt persónur leiðinlegar ef þeim líkar ekki röddin, burtséð frá öllu öðru.
(Heimild: Valdís Ingibjörg Jónsdóttir (2005). Vistvænar forsendur í kennsluhúsnæði. Ráðstefna á vegum Umhverfisstofnunar, Heyrna- og talmeinastöðvar Íslands, Lýðheilsustöðvar, Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar og Vinnueftirlits ríkisins.)
Það er því mikilvægt fyrir kennara að kynna sér hvernig röddin virkar og hvað hefur áhrif á hana, hvernig sé best að beita henni til að það sem sagt er skili sér til nemendanna án þess að það bitni á raddheilsu kennarans.
Hvað er hægt að gera? Fyrir kennara er mælt með:
- að nota magnarakerfi,
- að dragar úr hávaða - t.d. setja einangrun á snertifleti húsgagna og einangrun í loft og á veggi,
- að bæta inniloft – t.d. hafa opna glugga eins og hægt er og hafa eftirlit með loftræstikerfum,
- að fá kennslu í raddbeitingu.
Smellið hér til að skoða meira efni um röddina og raddheilsu kennara.
Bæklingurinn Raddheilsa kennara.
Til baka