Frétt

7. jún. 2012

Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslna

... við Skóla ehf og Waldorfleikskólann Sólstafi.

Í dag 7. júní lágu fyrir niðurstöður í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Félagi leikskólakennara innan Kennarasambands Íslands um kjarasamning Félags leikskólakennara við Skóla ehf sem skrifað var undir þann 15. maí sl. með fyrivara um samþykki hlutaðeigandi félagsmanna. Á kjörskrá voru 41 og er niðurstaða atkvæðagreiðslunnar eftirfarandi:

Atkvæði greiddu 40 eða 97,5%.

„Já“ sögðu 35 eða 87,5%.
„Nei“ sögðu 4 eða 10%.
Auðir seðlar 1 eða 2,5%.

Þá lágu einnig fyrir í morgun niðurstöður í allsherjaratkvæðagreiðslu um kjarasamning Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara við Waldorfleikskólann Sólstafi sem skrifað var undir þann 21. maí sl. með fyrivara um samþykki hlutaðeigandi félagsmanna. Á kjörskrá voru 4 og er niðurstaða atkvæðagreiðslunnar eftirfarandi:

Atkvæði greiddu 3 eða 75%.

„Já“ sögðu 0 eða 0%.
„Nei“ sögðu 3 eða 100%.
Auðir seðlar 0 eða 0%.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli