Frétt

12. jún. 2012

Leikur að bókum

Endurmenntun Háskóla Íslands, í samstarfi við Félag leikskólakennara, býður upp á námskeiðið Leikur að bókum. Markmiðið með námskeiðinu er að veita leikskólakennurum margháttaðan innblástur tengdan vinnu með barnabækur í leikskólanum. Kynntar verða ferskar og einfaldar aðferðir til að gera barnabækur lifandi fyrir börnunum og leysa úr læðingi sköpunarkraft, ímyndunarafl og síðast en ekki síst bókaást hjá bæði börnum og fullorðnum. Skráningarfrestur er til 4. október 2012 en sjálft námskeiðið fer fram fimmtudagana 11. og 18. október frá kl. 8:30 til 12:00.

Sjá nánari upplýsingar hér.

Einnig er boðið upp á námskeiðið Leikur að bókum í fjarfundi. Skráningarfrestur á það er til 27. ágúst 2012 en sjálft námskeiðið fer fram föstudagana 7. og 14. september kl. 8:30 til 12:00. Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað. Almennar skráningar fara fram hjá Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum. Starfsmenn stofnana og fyrirtækja sem eiga fjarfundabúnað skrá sig beint hjá Endurmenntun HÍ í síma 525-4444.

Sjá nánar upplýsingar um fjarnámskeiðið hér.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli