Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun í samstarfi við Kennarasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga efna til ráðstefnu 31. ágúst nk. kl. 13:00-16:30 um grunnþætti í nýrri menntastefnu. Ráðstefnan verður haldin í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
Grunnþættirnir eru kynntir í nýjum aðalnámskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla 2011. Grunnþættir í menntun eru: Læsi í víðum skilningi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Þeir snúast um læsi á samfélag, menningu, umhverfi og náttúru, einnig um framtíðarsýn, getu og vilja til að hafa áhrif og taka virkan þátt í að viðhalda samfélagi sínu, breyta því og þróa. Þeim er ætlað að undirstrika meginatriði í almennri menntun og stuðla að meiri samfellu í öllu skólastarfi.
Á ráðstefnunni verður fjallað um innleiðingu grunnþáttanna í skólastarf og þar gefst tækifæri til að miðla hugmyndum og reynslu milli skóla og skólastiga. Gert er ráð fyrir að útvarpa inngangserindi á vef. Einnig að skipuleggja málstofur samhliða ráðstefnunni á nokkrum stöðum víðs vegar um landið.
Nánari upplýsingar koma síðar.