Ingibjörg H. Bjarnason menntafrömuður, dans- og leikfimikennari, bekkjarkennari og síðar skólastjóri (forstöðumaður)
19. jún. 2012
19. júní
Konur fengu kosningarétt þann 19. júní árið 1915 og því er fagnað um allt land í dag um leið og minnt er á vonda stöðu kvenna víðsvegar um heim og bent á leiðir til úrbóta. Ingibjörg H. Bjarnason menntafrömuður, dans- og leikfimikennari, bekkjarkennari og síðar skólastjóri (forstöðumaður) Kvennaskólans var fyrst kvenna til að setjast á Alþingi en það þar var árið 1922. Eins og mýmörg dæmi sanna hafa kennarar lengst af verið framarlega í samfélagsumræðu og -úrbótum.
Kvenréttindafélag Íslands gefur út
19. júní sem fylgir með Fréttablaðinu í dag og vegleg dagskrá er á vegum félagsins, sem einnig er nýkomið með
fésbókarsíðu. Á vef félagsins eru einnig upplýsingar um hátíðahöld víðar um landið.
Til baka