Frétt

9. ágú. 2012

Kertafleyting á Akureyri og í Reykjavík í kvöld

Kennarar eru áberandi í hópi friðarsinna og hér með minnum við á hina árlegu kertafleytingu til minningar um fórnarlömb kjarnorkusprengjanna í Hiroshima og Nagasaki í ágúst 1945.

Í Reykjavík er kertafleytingin haldin við Tjörnina í dag, fimmtudaginn 9. ágúst kl. 22:30. Kerti verða seld á staðnum og kosta kr. 500 stykkið eða 3 á kr. 1.200. Inosuke Hayasaki lifði af árásina á Nagasakí mun halda ávarp við athöfnina. Kertafleytingin er samstarfsverkefni sjö friðarsamtaka og er ætlað að leggja áherslu á kröfu þeirra um heim án kjarnorkuvopna.

Á Akureyri verður kertafleyting til að minnast sprenginganna á Hiroshima og Nagasaki haldin við Minjasafnsstjörnina í dag, fimmtudaginn 9. ágúst kl. 22:00. Ræðumaður er Þórarinn Hjartarsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga á Norðurlandi. Í ár beinist athyglin að Sýrlandi og Mið-Austurlöndum. Á vefnum fridur.is er sagt frá kertafleytingunni: Frá árinu 1985 hafa íslenskir friðarsinnar fleytt kertum í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí 6. og 9. ágúst 1945 og til að leggja áherslu á kröfu sína um friðsaman heim án kjarnorkuvopna. Um er að ræða hefð sem upprunnin er í Japan en kertafleytingar af þessu tagi fara fram víða um lönd í ágúst ár hvert.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli