Frétt

10. sep. 2007

Tilkynning frá uppstillingarnefnd Félags grunnskólakennara

Samkvæmt lögum félagsins er auglýst er eftir framboðum og/eða tilnefningum til eftirfarandi trúnaðarstarfa fyrir FG, Félag grunnskólakennara:

  • 1 formaður
  • 4 meðstjórnendur
  • 5 fulltrúar í varastjórn
  • 2 fulltrúar í stjórn KÍ
  • 2 fulltrúar í varastjórn KÍ
  • 2 skoðunarmenn reikninga
  • 1 skoðunarmaður reikninga til vara
  • 5 fulltrúar í samninganefnd
  • 5 fulltrúar til vara í samninganefnd
  • 6 fulltrúar í skólamálanefnd
  • 5 fulltrúar til vara í skólamálanefnd
  • 2 fulltrúar í Vonarsjóð
  • 2 fulltrúar til vara í Vonarsjóð
  • 3 fulltrúar í uppstillingarnefnd
  • 3 fulltrúar til vara í uppstillingarnefnd

Kosið verður á aðalfundi FG 13. og 14. mars 2008.

Framboðum og/eða tilnefningum skal skila til: Sesselju G. Sigurðardóttur (sesselja hjá ki.is) eigi síðar en 13.janúar 2008. Umsækjendur skulu skila ferilskrá á rafrænu formi sem má nálgast á síðu Félags grunnskólakennara, www.fgk.is.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli