Samkvæmt lögum félagsins er hér með auglýst eftir framboðum og/eða tilnefningum til trúnaðarstarfa fyrir Félag leikskólakennara næsta kjörtímabil 2008 – 2011. Á forsíðu heimasíðu FL undir auglýsingar er hægt að lesa sér til um hlutverk stjórna og nefnda og greiðslufyrirkomulag vegna trúnaðarstarfa. Þar er einnig hægt að nálgast eyðublað um framboð til trúnaðarstarfa.
Skila skal framboðum eða tilnefningum fyrir 26. október.
Sjá tilkynningu uppstillingarnefndar í heild.