Norræna félagið gegn illri meðferð á börnum (www.nfbo.com) var stofnað í Kaupmannahöfn 1998. Félagið hefur Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins að leiðarljósi. Markmið þess er að standa fyrir og styðja norrænt samstarf einstakra fagmanna og skoðanaskipti þeirra margvíslegu faghópa sem vinna með börn. Félagið er aðili að ISPCAN (International Society for the Prevention of Child Abuse and Neglect, www.ispcan.org).
5. ráðstefna Norræna félagsins gegn illri meðferð á börnum verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 18. til 21. maí 2008. Þema ráðstefnunnar er Börn og vanræksla: Þarfir - Skyldur - Ábyrgð. Ætlunin er að höfða til sérfræðinga á sem flestum sviðum þar sem unnið er með þarfir, hagsmuni og réttindi barna og beina athyglinni að vanrækslu í víðum skilningi, af hálfu foreldra, sérfræðinga og samfélagsins. Ráðstefnan er skipulögð í samstarfi við Barnaverndarstofu.
Hér er dagskrá og upplýsingar um skráningu. Sjá einnig á www.congress.is/nfbo2008.
Við viljum hvetja sem flesta til að taka þátt í þessari metnaðarfullu ráðstefnu og skrá sig tímanlega til að njóta lægra þátttökugjalds. Félagsmenn greiða enn lægra þátttökugjald og geta þeir sem vilja ganga í félagið haft samband við Má V. Magnússon, mar.v.magnusson hjá grvog.hg.is.