Samninganefnd Félags grunnskólakennara (FG) hélt nýlega tveggja daga vinnufund á Hótel Heklu á Skeiðum. Samningur grunnskólakennara við sveitarfélögin rennur út í maí og eru samningar lausir frá þeim tíma. Gera má ráð fyrir að aðilar hefji formlegar kjaraviðræður um mánaðarmótin febrúar/mars.
Samninganefnd FG hóf undirbúningsvinnuna árið 2005 og hefur allar götur síðan unnið markvisst að væntanlegum kjaraviðræðum. Á síðasta fundi hennar nú síðast var unnið að hugmyndum að samningsmarkmiðum félagsins. Á fundinum var samþykkt svohljóðandi yfirlýsing:
Félag grunnskólakennara er tilbúið að ræða við LN eða einstök sveitarfélög um gerð kjarasamninga og/eða vinnustaðasamninga. Með vinnustaðasamningum er heimilt að semja við einstaka skóla og/eða einstaka starfsmenn um rýmkun á dagvinnutímabili og um ákveðið frjálsræði um hvernig vinnutíma er háttað. Slíkir samningar mega þó ekki ganga á áunnin réttindi né fara á svig við lög og reglur sem gilda um opinbera starfsmenn.
Samninganefnd FG mun klára mótun samningsmarkmiða um miðjan janúar og kynna þau drög fyrir trúnaðarmönnum og félögum sínum í kjölfarið. Að kynningum loknum verða markmiðin kynnt fyrir sveitarfélögunum.
Laun kennara hafa dregist verulega aftur úr launum annarra stétta, sem meðal annars má sjá af erfiðleikum við mannaráðningar í haust og mikla starfsmannaveltu það sem af er ári. Dæmi eru um að bekkir hafi fengið þrjá umsjónarkennara það sem af er skólaárinu. Álag hefur aukist gífurlega og ófaglærðum fjölgað mikið.
Nýlega kom út fréttabréf frá kjararannsóknarnefnd (KOS). Þar kemur m.a. fram að kaupmáttur launa grunnskólakennara og skólastjóra í Reykjavík hefur rýrnað um 5,6% (-5,6%) frá árinu 2005 á meðan kaupmáttur almennt, mældur með launavísitölu Hagstofunnar, hefur vaxið um rúm 8% fram á mitt ár 2007 (sjá meðfylgjandi mynd).
Félag grunnskólakennara hefur undanfarna mánuði unnið í samstarfi við kjarasvið Samband íslenskra sveitarfélaga að sameiginlegum undirbúningi vegna kjaraviðræðna. Tveir vinnuhópar hafa verið að störfum frá því í maí sl.
Annar hópurinn hefur fjallað um sameiginlega framtíðarsýn aðila á skólamál og lauk sá hópur störfum í lok október. Nú eru aðilar að kynna afrakstur þeirrar vinnu meðal stjórna, samninganefnda og skólamálanefnda.
Hinn hópurinn er að gera nákvæma greiningu á núgildandi kjarasamningi með tilliti til ýmissa þátta s.s. starfsheita, starfsaldurs, menntunar, kyns, aldurs o.fl. Reiknað er með að þeirri vinnu ljúki í desember. Eftir það móta aðilar samningsmarkmið og eftir áramót (í febrúar/mars) hefjast formlegar kjaraviðræður.
Það er mat samninganefndar Félags grunnskólakennara að afar mikilvægt sé að aðilar nái samkomulagi áður en kjarasamningurinn rennur út, í lok maí 2008.