Í kjölfar fréttar á Stöð 2 um fyrsta erlenda leikskólastjórann á Íslandi vill formaður 4. svæðadeildar FL vekja athygli á erlendum leikskólastjóra sem hefur starfað frá 2005. Hún heitir Barbara Ferster og er leikskólakennari með meistarapróf frá Póllandi. Barbara er leikskólastjóri í leikskólanum Grænagarði á Flateyri. Hún hefur búið á Flateyri í rúm 10 ár og starfaði í leikskólanum sem deildarstjóri áður en hún var ráðin leikskólastjóri. Í leikskólanum Grænagarði er fjölmenningarlegt samfélag og á því byggir starfsemi skólans. Kennarar eru íslenskir og pólskir og skiptist hlutfallið til helminga og á það sama við um nemendur skólans.