Frétt

8. apr. 2008

Að koma saman tónverki með hóp

Laugardaginn 12. apríl verður námskeið á vegum tónmenntakennarafélagsins. Það verður haldið í Seljaskóla frá klukkan 10-12 og 13-16 og er námskeiðsgjald 10.000,- krónur. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru þær stöllur Þórdís Heiða og Hildur Guðný. Sjá upplýsingar um þær hér.

Á námskeiðinu fyrir tónmenntakennarafélagið er ætlunin að fara í gegnum það ferli með þátttakendum að koma saman tónverki með hóp. Margir þættir spinnast þar saman sem við gefum okkur tíma til að skoða með hópnum. Má þar nefna:

  • Hópefli
  • Hrynþjálfun
  • Að færa hrynhugmynd yfir á hljóðfæri
  • Hvernig má búa til texta?
  • Hvernig má finna þema til að vinna út frá?
  • Tónlistarlegir upphafspunktar?
  • Sköpunarvinna í smærri hljóðfærahópum. Blönduðum og/eða hreinum?
  • Tónleikaupplifun þátttakenda, hverju viljum við ná fram?

Skráning á námskeið sendist á þetta netfang bryndisb hjá btnet.is, en síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 8. apríl.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli