Frétt

18. apr. 2008

Gullið tækifæri!

Fimmtudaginn 24. apríl er boðið upp á stutt námskeið í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, þar sem sýnt verður hvernig nota má gagnvirkar töflur til stærðfræðikennslu. Einnig verða kynnt forrit til stærðfræðikennslu, einkum Autograph og Geometer's Sketchpad. Rauði þráðurinn á námskeiðinu verður gullna talan phi. Fyrirlesturinn er fyrir alla áhugamenn um stærðfræðikennslu.

Kennari er Kristján B. Halldórsson. Námskeiðið verður í stofu 305 í bóknámshúsi Fjölbrautaskólans kl. 13:00 - 15:30. Skráning er í síma 455-8000 eða með tölvupósti til kristjan hjá fnv.is. Fjöldi þátttakenda takmarkast af stærð stofu.

Sama dag er boðið upp á fyrirlestur og stutt námskeið í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undir heitinu: Nýjungar í kennslufræðum. Hvernig nýta má kennsluaðferð samvinnunáms (Cooperative Learning in Multicultural Groups) eða samvirkt nám í fjölbreyttum nemendahópi við íslenskukennslu. Flutt verður stutt kynning á kennsluaðferðinni og síðan fá þátttakendur að spreyta sig á henni.

Efnið er fyrir alla áhugamenn um íslenskukennslu og kennslufræði. Kennari er Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir. Námskeiðið verður í bóknámshúsi Fjölbrautaskólans kl. 13:30 - 15:00, stofa auglýst síðar. Skráning er í síma 455-8000 eða með tölvupósti til thorgerdur hjá fnv.is. Fjöldi í hóp er lágmark 5 og fjöldi þátttakenda takmarkast af stærð stofu.

Aðgangseyrir er enginn og námskeiðin eru styrkt af Sáttmálasjóði Kaupfélags Skagfirðinga.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli