Haldið verður upp á 15 ára afmæli skólahljómsveitar Grafarvogs með veglegum tónleikum í Rimaskóla sunnudaginn 20. apríl kl. 15:00. Einnig verður gefinn út geisladiskur í tilefni afmælisins.
Júlíus Vífill Ingvarsson formaður menntaráðs mun flytja ávarp í upphafi tónleikanna, en á dagskrá þeirra verða m.a. lög eftir Tsjaíkovskíj, Brahms, James Brown, Leroy Anderson, Queen og Eric Clapton.
Fulltrúar fjölmiðla eru hjartanlega velkomnir á afmælistónleikana.
Mikið hefur verið að gerast í skólahljómsveit Grafarvogs á afmælisárinu. Í haust fór yngsta sveitin á landsmót Sambands íslenskra skólalúðrasveita á Höfn í Hornafirði og elsta sveitin var í æfingabúðum að Laugum í Sælingsdal. Á vormisserinu hefur sveitin m.a. tekið þátt í Landsmóti Sambands íslenskra skólalúðrasveita í Reykjanesbæ þar sem æft var og leikið undir stjórn heimsfrægra erlendra hljómsveitarstjóra. Í júní stefnir elsta sveitin á Noregsferð og er ætlunin að æfa með hljómsveitum þar, bæði unglingasveitum og fullorðinssveitum, og einnig að spila opinberlega.
Félagar í skólahljómsveit Grafarvogs æfa nú stíft fyrir upptökur á geisladisk sem gefinn verður út í tilefni 15 ára afmælisins.
Einar Jónsson er stjórnandi Skólahljómsveitar Grafarvogs og veitir nánari upplýsingar í s. 664 8189.