Frétt

2. maí 2008

Þrjár doktorsvarnir við Kennaraháskóla Íslands

Dagana 7., 8. og 9. maí fara fram fyrstu og einu doktorsvarnir við Kennaraháskóla Íslands þar sem skólinn sameinast Háskóla Íslands 1. júlí næstkomandi. Munu varnirnar allar byrja kl. 14:00.

Doktorsefnin eru Sigurður Pálsson cand.theol, Guðrún Geirsdóttir lektor við Háskóla Íslands og Rúnar Sigþórsson dósent við Háskólann á Akureyri.

Doktorsvarnir eru öllum opnar og fara fram í Skriðu, fyrirlestrarsal Kennaraháskóla Íslands (gengið inn frá Háteigsvegi). Ritgerðir doktorsefna munu liggja frammi á bókasafni skólans viku áður en vörn fer fram. Nánari kynning á doktorsefnunum.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli