Frétt

27. maí 2008

Stofnun rannsóknarstofu um skóla án aðgreiningar

Þann 2. júní næstkomandi kl. 16.00 verður stofnuð rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar við Kennaraháskóla Íslands í Skriðu, fyrirlestrarsal skólans.

Hlutverk rannsóknarstofunnar er að efla rannsóknir og þróunarstarf á sviði skóla án aðgreiningar, miðla þekkingu, læra af vettvangi, veita ráðgjöf, efla innlend og erlend tengsl og taka þátt í alþjóðlegri þekkingarsköpun. Einnig mun rannsóknarstofan standa fyrir málþingum og stuðla að útgáfu fræðilegs efnis.

Á annan tug fræðimanna við Kennaraháskólann og Háskólann á Akureyri starfa nú að rannsóknum sem tengjast fræðasviðinu skóli án aðgreiningar. Rannsóknarstofan er ætluð sem samstarfsvettvangur þessara aðila og erlendra fræðimanna, stúdenta í framhaldsnámi (meistara- og doktorsnámi), skólayfirvalda, skólanna, starfsfólks skólanna, foreldra og hagsmunafélaga nemenda með sérþarfir í námi.

Skóli án aðgreiningar er opinber menntastefna landsins sem er bundin í alþjóðasamþykktir. Hún snýst um bætta menntun kennara, skipulag skóla, náms og kennslu sem hefur að leiðarljósi vandaða menntun allra, lýðræði og félagslegt réttlæti í skólum. Þessi menntastefna er ein af þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og yfirlýst menntastefna Evrópusambandsins og fjölmargra annarra ríkja og alþjóðastofnana.
Virtur fræðimaður heiðursgestur á stofnfundinum

Heiðursgestur stofnfundarins verður prófessor Julie Allan frá Háskólanum í Stirling í Skotlandi. Hún er meðal kunnustu vísindamanna á þessu fræðasviði í hinum vestræna heimi. Hún hefur unnið að menntun almennra kennara og menntun háskólakennara í Bretlandi og víðar, stundað rannsóknir, metið gæði almennrar kennaramenntunar og kennslu á háskólastigi og verið ráðgjafi ýmissa háskólastofnana. Auk þess hefur hún verið ráðgjafi skoska þingsins við stefnumótun og gerð skosku grunnskólalaganna. Hún var nýlega tilnefnd sem sérfræðilegur ráðunautur Evrópuráðsins (Council of Europe) til að efla færni (competence building) kennara við vinnu með hinum fjölbreytta hópi evrópskra skólanema.

Dagskrá stofnfundarins:

16.00     Ólafur Proppé rektor býður gesti velkomna
16.10     Rannsóknarstofa um skóla án aðgreiningar stofnuð
16.20     Julie Allan prófessor við Háskólann í Stirling:
               Researching Inclusive Education: Asking the Right Questions
17.00     Léttar veitingar

Stofnun rannsóknarstofunnar er liður í dagskrá hundrað ára afmælis Kennaraskólans / Kennaraháskólans.

Julie Allan mun einnig flytja fyrirlestur við Háskólann á Akureyri þann 5. júní kl. 16.30 í húsakynnum kennaradeildar í Þingvallastræti 23. Þar mun hún fjalla um efni bókar sinnar Rethinking Inclusive Education: The Philosophers of Difference in Practice en sú bók hefur að mati gagnrýnanda opnað nýjar víddir á fræðasviðinu.

Allir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.

Nánari upplýsingar veitir Dóra S. Bjarnason prófessor og formaður undirbúningsstjórnar rannsóknarstofunnar í síma 563-3828 / 896-0241. Dóra veitir einnig nánari upplýsingar um Julie Allan.

Nánari upplýsingar um rannsóknarstofuna er að finna á vef Kennaraháskóla Íslands: http://wp.khi.is/skolianadgreiningar og hér.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli