Í kvöldfréttum RÚV þann 9. júní 2008 var fjallað um launagreiðslur til fyrrverandi formanns og varaformanns Orlofssjóðs KÍ. Vegna þeirrar umfjöllunar vilja undirrituð taka fram eftirfarandi:
Þann 23. maí sl. eða einum og hálfum mánuði eftir að fjórða þingi KÍ lauk barst formanni Kennarasambandsins ósk frá félagsmanni um að fá senda reikninga Orlofssjóðs fyrir síðasta uppgjörsár sem og afrit af öllum fylgiskjölum með greiðslum til fyrrverandi formanns og varaformanns sjóðsins samkvæmt reikningum. Formaður ákvað í samráði við varaformann og skrifstofustjóra sambandsins að leita ráða hjá löggiltum endurskoðanda KÍ og lögmanni endurskoðunarskrifstofunnar um hvað bæri almennt að gera með óskir af þessu tagi. Stjórn KÍ ákvað að fara að ráðum þessara aðila. Það var niðurstaðan að ekki væri heimilt að afhenda afrit að þeim gögnum sem um var beðið á grundvelli einkahagsmuna aðila. Kennarasambandið hefur borið þetta álit undir fleiri lögmenn og eru þeir sammála þessari afstöðu.
Þrátt fyrir að Kennarasambandið falli ekki undir upplýsingalög ákvað stjórn að svara félagsmanninum á sama hátt eins og gert væri ef áðurnefnd lög giltu um starfsemi Kennarasambands Íslands, þ.e.a.s. að veita almennar upplýsingar og senda honum reikninga Orlofssjóðs og athugasemdir endurskoðenda en hafna að senda ljósrit af fylgiskjölum úr bókhaldi. Allar ákvarðanir um vinnu á vegum Orlofssjóðs eru bókaðar í fundargerðum sjóðsins og hefði viðkomandi félagsmaður geta kynnt sér þær ef hann hefði óskað eftir því. Formaður KÍ átti auk þess símtal við umræddan félagsmann og fór yfir röksemdir fyrir þessari ákvörðun og útskýrði ýmis atriði málsins nánar. Einnig bauðst formaður KÍ til þess að mæta á fund kennara í þeim skóla sem félagsmaðurinn starfar við og fara yfir málið í heild sinni. Því boði svaraði félagsmaðurinn með úrsögn úr KÍ og beiðni til RÚV um að taka málið til umfjöllunar.
Í fréttum RÚV kom fram að málið sem um ræðir hafi verið til umfjöllunar á nýafstöðnu þingi Kennarasambands Íslands. Eins og fram hefur komið lauk fjórða þingi KÍ fyrir tveimur mánuðum eða nánar tiltekið 11. apríl 2008.
Í fréttum útvarps var því haldið fram að greiðslur þær sem um ræðir væru laun fyrrverandi formanns og varaformanns Orlofssjóðs fyrir óskilgreind störf. Þetta er rangt. Þær tölur sem koma fram í bókhaldi sjóðsins eru launagreiðslur, greiðslur fyrir akstur, dagpeningagreiðslur og þóknanir fyrir fundarsetur samkvæmt ákvörðun stjórnar Orlofssjóðs.
Í framhaldi af úttekt ráðgjafarfyrirtækisins ParX á starfsemi Kennarasambands Íslands, aðildarfélaga þess og sjóða ákvað stjórn KÍ að setja samræmdar reglur um allar launagreiðslur og þóknanir innan KÍ. Reglur þessar gilda nú um allar stjórnir, nefndir og ráð á vegum Kennarasambandsins og aðildarfélaga þess. Reglurnar voru samþykktar af stjórn KÍ þann 7. mars 2007 og tóku gildi frá og með 1. ágúst sama ár. Launataxtar frá þeim tíma eru því samkvæmt ákvörðun stjórnar KÍ en ákvörðun um vinnumagn og hverjir vinna á vegum Orlofssjóðs er samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.
Í fréttunum var því haldið fram að fyrrverandi formaður Orlofssjóðs hefði jafnhliða störfum sínum fyrir sjóðinn gegnt starfi skólastjóra. Þetta er rangt. Fyrrverandi formaður Orlofssjóðs KÍ hafði á þeim tíma látið af starfi skólastjóra.
Á fjórða þingi KÍ sem haldið var í byrjun apríl 2008 komu reikningar Orlofssjóðs til umræðu og afgreiðslu og voru þessar greiðslur gagnrýndar af ýmsum þingfulltrúum. Tvennt var einkum gagnrýnt. Í fyrsta lagi að það væri óeðlilegt að stjórnarmenn sjóðsins ynnu alla þessa vinnu sjálfir í stað þess að ráða utanaðkomandi aðila til verka. Í öðru lagi fannst þingfulltrúum sem tjáðu sig um málið að launin sem greidd voru væru of há. Þess má geta að þingfulltrúar höfðu fullan aðgang að bókhaldi KÍ meðan á þingi stóð og gátu fengið allar þær upplýsingar sem um var beðið. Eftir umræður um málið og skýringar voru reikningar sjóðsins bornir upp og samþykktir ásamt öðrum reikningum sem lagðir voru fram endurskoðaðir.
Reykjavík 10. júní 2008.
Eiríkur Jónsson, formaður KÍ
Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður KÍ