Viðburður

7. sep. 2012

Fjarnámskeiðið Leikur að bókum

Endurmenntun Háskóla Íslands, í samvinnu við Félag leikskólakennara býður upp á námskeiðið Leikur að bókum í fjarfundi. Skráningarfrestur á það er til 27. ágúst 2012 en sjálft námskeiðið fer fram föstudagana 7. og 14. september kl. 8:30 til 12:00. Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað. Almennar skráningar fara fram hjá Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum. Starfsmenn stofnana og fyrirtækja sem eiga fjarfundabúnað skrá sig beint hjá Endurmenntun HÍ í síma 525-4444.

Sjá nánar upplýsingar um fjarnámskeiðið hér.


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli