Fosshótel

Gistimiði á Fosshóteli, gildir fyrir tvo í gistingu í 2ja manna herbergi (1x2) með morgunverði í eina nótt. Hver miði reiknast sem þrír orlofspunktar.

  • Verð á gistimiða á sumrin frá 1. júní til 30. ágúst 2013 er kr. 16.000.
  • Verð á gistimiða á veturna frá 1. september til 31. maí 2013 er kr. 7.000.

Gistimiði á veturna gildir einungis á neðangreind Fosshótel, tímabilið 1. september til 31. desember 2014.

  • Fosshótel Baron, Reykjavik, s. 562 3204 - opið allt árið.
  • Fosshótel Lind, Reykjavík, s. 562 3350 - opið allt árið.
  • Fosshótel Reykholt, Borgarfjörður, s. 435 1260 - opið allt árið en skert starfsemi yfir vetrartímann*.
  • Fosshótel Húsavík, s. 464 1220 - opið allt árið en skert starfsemi yfir vetrartímann*.
  • Fosshótel Dalvík, s. 466 3395 - opið allt árið en skert starfsemi yfir vetrartímann*.
  • Fosshótel Skaftafell, s. 478 1945 - opið allt árið en skert starfsemi yfir vetrartímann*.
  • Fosshótel Laugar, Laugum í Reykjadal, s. 464-6300 - opið 1. júní - 19. ágúst.
  • Fosshótel Vatnajökull, Lindarbakka, Hornafirði, s. 478 2555 - opið 9. maí - 25. september.
  • Fosshótel Mosfell, Þrúðvangur 6, Hellu, s. 487-5828 - opið 1. júní - 31. ágúst.

* Takmörkuð starfsemi yfir vetrartímann gæti hafist í lok október og staðið fram í mars. Vinsamlegast hringið í hótelin með góðum fyrirvara til þess að athuga opnunartíma. Takmörkuð starfsemi getur þýtt að ekki er næturvakt á hótelinu og jafnvel að ekki séu veitingar í boði.

Verð á aukarúmi ásamt morgunverði er kr. 5.000 (1 barn undir 12 ára aldri frítt í herbergi með foreldri/um).

Bókanir: bókanir fyrir Fosshótel skulu berast til söluskrifstofu Fosshótela (s.: 562 4000 / fax: 562 4001 / netfang: bokun hjá fosshotel.is). Hægt er að bóka gistingu á heilsárshótelin með því að hringja beint í númer þeirra. Við bókun skal tekið fram að það verði greitt með gistimiða/afsláttarhótelmiða KÍ.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli