A hluti - Starfsmenntunarstyrkir

Vinnureglur fyrir A hluta

Starfsmenntunarstyrkir

Endurmenntun innanlands og utan

Námskeið/ráðstefnur/kynnisferðir allt að 125.000 kr. á tveggja ára tímabili. Miðað er við þann dag sem styrkur er greiddur út.

Almennar reglur:

  • a)   Meta skal umsóknir með hliðsjón af því að nám/námskeið nýtist umsækjanda í starfi. Rísi upp ágreiningur um tengsl náms og starfs umsækjanda verður kallað eftir staðfestingu frá yfirmanni umsækjanda.
     
  • b)   Við mat á umsóknum um styrk til einstaklinga sem fara í kynnisferðir til útlanda gilda eftirfarandi reglur. Þegar tilskilin gögn liggja fyrir skulu eftirtalin atriði m.a. höfð til hliðsjónar við mat á umsóknum:
          I.   Ákvæði í reglum um Verkefna- og námsstyrkjasjóð FG og SÍ.
          II.  Faglegt gildi ferðarinnar fyrir skólastarfið og skal þá haft í huga hvort um er að ræða kynningu og/eða tengsl við nýbreytni- eða þróunarstarf.
          III. Umfang dagskrár. Miða skal við að dagskrá skólaheimsókna standi yfir ekki skemur en sem nemur tveimur heilum dögum.
    Skólaheimsóknir einstaklinga í kynnisferðir til útlanda verða ekki í boði frá og með 16. apríl 2012 til 1. september 2013*, en þá verður þetta endurskoðað.
     
  • c)   Við viðmiðunartölur vegna námskeiða bætist ferðakostnaður innanlands, allt að ódýrasta bónus-fargjaldi/rútufargjaldi miðað við 100 km fjarlægð frá námskeiðsstað. Ferða- og gistikostnaður er hluti af 125.000 kr.
      
  • d)   Hver umsækjandi getur fengið að hámarki kr. 125.000 á tveggja ára tímabili.
     
  • e)   Styrkir v/námskeiða o.s.frv. eru greiddir út í einu lagi skv. framvísun kvittana fyrir kostnaði og staðfestingu um þátttöku. Heimilt er að styrkja námskeiðsgjald, ferðakostnað og gistingu. Hæsti styrkur vegna gistingar er kr. 8.000,- á gistinótt. Ef keyrt er þarf að skila kvittun vegna bensínkostnaðar. Fæði er ekki styrkt.
     
  • f)   Heimilt er að sækja um styrk sex mánuði aftur í tímann.
     
  • g)   Ef styrkþegi hefur ekki nýtt sér styrk sem hann hefur fengið úthlutað sex mánuðum eftir tilkynningu þess efnis fellur styrkurinn niður.
     
  • h)   Heimilt er að sækja um styrk vegna skólagjalda að hámarki kr. 125.000,-.

Reglur þessar tóku gildi 16. apríl 2012
Samþykkt af stjórn 26. mars 2012

* Skólaheimsóknir einstaklinga í kynnisferðir til útlanda verða ekki í boði frá og með 16. apríl 2012 til 1. maí 2013, en þá verður þetta endurskoðað. Þetta var endurskoðað á fundi stjórnar 9. janúar 2013 og var þá ákveðið að framlengja þetta til 1. september 2013, en þá verður þetta endurskoðað aftur.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli