2007

Menntastefna morgundagsins
Ársfundur skólamálaráðs KÍ og ársfundarfulltrúa

Ársfundur skólamálaráðs KÍ var haldinn í beinu framhaldi af ársfundi Kennarasambandsins, eftir hádegi þann 27. apríl. Fundurinn var sameiginlegur með fulltrúum á ársfundi KÍ. Fyrir fundinum lágu gögn og upplýsingar um starfsáætlun skólamálaráðs og starfsemi ráðsins og skólamálanefnda aðildarfélaga, sjá hér.

Fundurinn tók til umfjöllunar tillögur starfshópa um 10 punkta samkomulagið undir yfirskriftinni Menntastefna morgundagsins. Haldin voru erindi um tillögur starfshópa um nám og námsskipan, um fjar- og dreifnám, náms- og starfsráðgjöf, um breytingar á lögum um lögverndun og lengingu kennaramenntunar og um endurskoðun á lögum um leik-, grunn- og framhaldsskóla. Starfshópar um lagabreytingar hafa ekki skilað lokatillögum og frumvörp hafa ekki verið flutt um málin.

Fundargerð ársfundar skólamálaráðs.

Erindi:

1. Lögverndun og kennaramenntun

2. Fjar- og dreifnám, náms- og starfsráðgjöf

3. Tillögur í lokaskýrslum nefnda um nám og námsskipan

Undir þessum lið verða ræddar tillögur starfshóps um málefni nemenda á almennri námsbraut, tillögur starfsnámsnefndar, og tillögur starfshóps um sveigjanleika og fjölbreytni í skipulagi náms og námsframboðs.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli