Félag stjórnenda leikskóla

Félags stjórnenda leikskóla var stofnað 30. apríl 2010. Aðild að félaginu eiga aðstoðarleikskólastjórar, leikskólastjórar, ráðgjafar og fulltrúar á skólaskrifstofum og hjá rekstraraðilum, sem vinna að stjórnun og ráðgjöf í leikskólum eða stofnunum og fyrirtækjum sem tengjast uppeldis og fræðslumálum, hafa leyfisbréf fyrir kennslu í leikskólum, eru félagsmenn í Kennarasambandi Íslands og FSL semur fyrir, skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda.

Hlutverk félagsins er að fara með málefni félagsmanna FSL, að vinna að bættum kjörum félagsmanna sinna, að efla og standa vörð um menntun leikskólakennara og stjórnenda í leikskólum, að stuðla að alhliða framförum í uppeldis- og menntamálum barna og láta sig öll málefni barna varða og gæta hagsmuna leikskóla í hvívetna ásamt því að kynna sem best starf leikskóla meðal þjóðarinna.

Stjórn félagsins skipa fimm menn og þrír til vara, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Kjörtímabil stjórnar er milli aðalfunda.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli